Leyfðu HljóðX að koma með lausnina
Um árabil hefur HljóðX komið með flottar tæknilausnir fyrir ótal samkomu- og íþróttahús, verslanir, kirkjur, kvikmyndahús, flugvelli, verslunarmiðstöðvar, veitinga- og skemmtistaði, ráðstefnusali og fundarherbergi á hótelum, hjá fyrirtækjum og stofnunum svo eitthvað sé nefnt.
Lausnir HljóðX eru lausnir sem henta og virka og HljóðX útvegar allar réttu græjurnar í verkið og setur þær upp sé þess óskað. Hátalarar, skjáir og tjöld, fjarfundarbúnaður, magnarar, hljóðmixerar, LED skjáir, hljóðnemar, upphengibúnaður, ljós og myndstjórnarbúnaður er meðal þess sem boðið er uppá.
Í HljóðX býr sérfræðiþekking og einstök reynsla sem safnast hefur upp allt frá því Ingó, stofnandi HljóðX, var tæknistjóri á gamla Broadway við Álfabakka og svo á Hótel Íslandi í Ármúla en báðir þessir staðir voru á heimsmælikvarða í hljóð-, ljósa- og myndbúnaði.