Vertu partýstjórinn í útilegunni í sumar!
Frábært tilboð með Fender þjóðlagagítar og Cube Street mini magnara.
Hægt er að tengja kassagítarinn í magnara og leyfa öllum að heyra í sér.
Taska, ól og gítarsnúra fylgir með.
Gítarinn:
Fender California Standard Redondo CE er vandaður kassagítar, hannaður fyrir gítarleikara sem vilja gott hljóðfæri á góðu verði.
Gítarinn er með Dreadnought lögun sem skilar góðum hljómi. Toppurinn er úr gegnheilu greni sem gefur náttúrulegt og opið hljóð.
Hálsinn er þægilegur og hentar bæði byrjendum og reyndari gítarleikurum. Cutaway gerir auðveldara að ná efri böndum gítarsins, sem hentar vel fyrir sólóspil. Innbyggt Fender-pickup gerir einfalt að tengja gítarinn við magnara eða hljóðkerfi fyrir lifandi flutning, upptökur og æfingar.
Þessi gítar er frábær kostur fyrir gítarleikara sem vill áreiðanlegt hljóðfæri með góðu hljóði, þægilegri spilun og klassískum Fender karakter.
Magnarinn:
Roland Cube Street Mini er lítill og léttur gítarmagnari sem er auðvelt að taka með sér hvert sem er. Hann gengur fyrir hleðslubatterí-i eða straumi, svo þú getur spilað bæði inni og úti.
Magnarinn gefur skýrt og gott hljóð í litlum pakka. Hann er með tvær rásir – eina fyrir gítar og eina fyrir söng eða hljóðnema. Þú getur stillt hljóðið með einföldum tökkum og valið mismunandi hljóðstíla.
Innbyggðir effektar (eins og reverb, chorus og delay) gera hljóðið flottara og skemmtilegra. Einnig er hægt að tengja síma eða afspilunargræju til að spila með uppáhalds lögum.
Cube Street Mini er frábær fyrir byrjendur og þá sem vilja æfa sig heima, spila á ferðinni eða taka smá gigg úti.
