Roland VAD-307 raftrommusett
Raftrommusett með útlitið á hreinu. Roland VAD307 nýtir alla möguleika sem TD-17 settin hafa, með “hálfskelja” plöttum.
Roland VAD307
Fullkomið sett fyrir heima hljóðverið. Settið inniheldur fimm “hálfskelja” platta, sem gefa trommaranum afar góða spila upplifun.
Kjarni VAD307 er ný uppfærði TD-17 trommusetts-heilinn. Hann býður upp á mikið safn af gamaldags og nútímalegum trommu-sándum, cymbölum og slagverks-sándum, öll tekin upp í hæstu hljóðgæðum þar sem hvert hljóðfæri er samplað með breiða dýnamík, þ.e. laus sem sterk slög eru öll tekin upp. Prismatic Sound Modeling tæknin frá Roland veitir svo nákvæma og náttúrulega spila upplifun. Ásamt því að hafa mikið af góðum innbyggðum sándum, er hægt að hala inn á græjuna þín eigin sánd.
Hefðbundnar trommur eru yfirleitt stærri en raftrommu plattar. Stærð platta og hefðbundið trommu útlit hefur áhrif á upplifun trommarans, ekki bara útlitslega, heldur einnig í allri upplifun við að spila á trommurnar. VAD307 er með 12” sneriltrommu og floor tom platta, tvo 10” tom tom platta og 18” bassatrommu platta sem skapar mjög náttúrulega spila upplifun. Trommu plattarnir eru einnig gerðir úr við sem gefur trommaranum enn raunverulega tilfinningu við spilamennskuna.
ATH: TROMMUSTÓLL, BASSATROMMU-PEDALL, SNERILSTANDUR, HI-HAT STANDUR, HEYRNATÓL OG KJUÐAR FYLGJA EKKI MEÐ.
Frekari upplýsingar um VAD307 er hægt að nálgast á Roland heimasíðunni.
