Roland Jazz Chorus 22 er nettur og léttur stereo gítarmagnari sem byggir á hinum klassíska Jazz Chorus tóni. Hann skilar hreinum, skýrum og breiðum stereo tóni sem hentar vel fyrir æfingar, upptökur og minni tónleika.
Magnarinn er með tvo 6,5 tommu hátalara og innbyggðan stereo chorus effect og reverb til að bæta dýpt við tóninn.
Jazz Chorus 22 virkar mjög vel með effectpedölum og hentar fyrir flestar tónlistarstefnur. Hann er einfaldur í notkun, auðveldur að flytja og frábær kostur fyrir gítarleikara sem vilja gott clean hljóð í minni stærð.
