Roland BT-1 Bar Trigger stöng/platti– frábær viðbót við trommusettið.
Roland BT-1 er nettur og þægilegur trommuplatti sem auðvelt er að koma fyrir við settið án þess að taka mikið pláss. Plattinn er bogalaga stöng sem er nett og með einstaklega næmum skynjara. BT-1 er frábær viðbót við trommusettið til að spila sánd frá t.d. TM2 heilanum, SPD SX plöttunum eða hvaða Roland trommusetts-heila sem er.
Helstu eiginleikar:
- Einföld uppsetning – hægt að festa beint á gjarðir flestra tromma án þess að þurfa sérstaka festingu eða þá beint á statíf.
- Nákvæm og áreiðanleg trigger-virkni, sem tryggir rétt viðbragð og kemur í veg fyrir tvöfalda triggeringu (false triggering).
- Fullkomin lausn til að spila stök sánd, eða t.d. starta og stoppa MIDI-stýringu eða lúppur
- Samhæfur við flesta Roland raftrommu heila, svo sem TD-seríuna, SPD-seríuna og fleiri.
Tæknilegar upplýsingar:
- Tegund: Mono trigger pad
- Tengi: 1 x trigger output (TRS jack)
- Stærð: 210 × 54 × 62 mm
- Þyngd: 300 g
- Fylgihlutir: Festing, notendahandbók
Fyrir hverja er BT-1?
- Trommuleikara sem vilja bæta við raftrommu án þess að þurfa meira pláss.
- Notendur sem vilja bæta við stýringu við settið sitt – t.d. til að skipta milli hljóða, ræsa smáforrit eða virkja lúppur
- Frábær kostur fyrir hybrid-uppsetningar, þ.e. blöndu af akústískum og rafrænum trommum.
