Öflugur og nettur hljóðgervill með innbyggðum trommuheila og söngeffektum
Lítill, mikill og á kostulegu verði. JD-XI sameinar alvöru analog hljóðgervla vél, frægu SuperNatural digital vélina og mörg önnur tól frá Roland í einn stílhreinann pakka. Með 37 lyklum, veitir þetta netta hljóðfæri heiminn allan af fyrirtaks hljóðum með heilan helling af stillingum, effektum og sérhönnunar möguleikum.
Takmörkin eru engin fyrir sköpunargáfuna, með innbyggðum „pattern sequencer“, vocoader og auto pitch fyrir söng.
Frekari upplýsingar um Roland JD-XI má finna á Roland síðunni.