JBL IRX115S Bassahátalari með innbyggðum magnara.
Öflugur Bassatónn
JBL IRX115S er nýjasta viðbótin í IRX línuna af meðfæranlegum hljóðkerfum frá JBL, sem er hannaður til að bæta bassasvörun niður í 35 Hz. Sterkur 15” hátalari með 3” raddsúlu tryggir djúpann og kraftmikinn bassa, sem gerir IRX115S að frábærum kost fyrir tónlistarfólk, plötusnúða og kynna sem vilja fá hágæða hljóð fyrir sanngjarnt verð.
Framúrskarandi Hljóðtækni
IRX115S nýtir sér tækni frá JBL, þar á meðal sérhannaða hátalarakeilu og magnara, stillta hýsingu með holum fyrir bassann, og innbyggt Crossover og pól-stillingar. Hátalarinn nær allt að 128 dB í hljómstyrk með skýrri, kraftmikilli hljóðupplifun og lítilli truflun.
Ferðavæn og Endingargóð Hönnun
IRX115S er hannaður til að skila betri afköstum en stærri hátalarabox, þrátt fyrir aðeins 29,6 kg þyngd. Öflug MDF-hýsing með styrktu grilli ver hátalarann án þess að skerða hljóðgæði. Vel hönnuð burðarhandföng auðvelda flutninga, og allar vörurnar í JBL IRX-línunni standast 100 klst álagspróf JBL.
Frábært Hljóð með Einföldum Stillingum
Með IRX línunni frá JBL er fullkomið hljóð aðeins einnar takkasnertingar í burtu. Stillingar fyrir crossover og skautun gerir þér kleift að stilla hljóðið að hvaða rými sem er. Hægt er að para IRX115S við aðra IRX hátalara, eins og IRX108BT og IRX112BT, til að fá Bluetooth hljóðstreymi, sjálfvirka feedback-vörn frá dbx, ducking og EQ-stillingar.
Helstu Eiginleikar
- 15” bassahátalari með 3” raddsúlu fyrir djúpan og nákvæman bassa
- Stillanlegt crossover við 80 Hz, 100 Hz og 120 Hz, sérsniðnir fyrir JBL IRX hátalara
- Tíðnissvið: 35 Hz – 147 Hz (-10 dB)
- Hámarksljómstyrkur: 128 dB
- Þyngd: 29,6 kg
- Peak Afl: 1.300W
- Tengi: 2 XLR Combo og 2 XLR út
- Skautunarhnappur sem lagar hljóðsvið hátalarans
- Létt og endingargóð MDF-hýsing
- Bassafærslugöt til að auka úttak og draga úr truflunum
- Burðarhandföng til að auðvelda flutninga
- Innbyggt inntak fyrir hátalara-súlu fyrir auðvelda samsetningu með IRX hátalara