Roland – Tónlistarupplifun án takmarkana
Roland er eitt virtasta vörumerki heims í rafhljóðtækni og hljóðfærum, með áratuga reynslu í að móta framtíð tónlistar. Hvort sem þú ert byrjandi, atvinnumaður, framleiðandi, DJ eða sviðslistamaður, þá státar Roland af fjölbreyttu úrvali tækja sem henta öllum stigum og stílum.
Í vöruframboði Roland má finna allt frá stafrænum píanóum og hljómborðum, yfir í trommusett og hátæknibúnaði fyrir upptökur og lifandi flutning. Roland er sérstaklega þekkt fyrir nýsköpun og gæði, og hefur sett mark sitt á hljóðheiminn með goðsagnakenndum vörum eins og V-Drums, JUNO, Fantom, SPD-SX, AIRA línunni og mörgum fleiri.
Hönnun Roland-tækja einkennist af nákvæmni, notendavænu viðmóti og ríkulegum möguleikum til að móta hljóð eftir eigin höfði. Þau eru smíðuð fyrir þá sem vilja skapa, æfa, flytja eða taka upp tónlist á faglegum grunni – heima, í hljóðveri eða á sviði.
HljóðX Rín er stoltur umboðsaðili Roland á Íslandi og býður upp á trausta ráðgjöf, faglega þjónustu og úrval af Roland tækjum sem hjálpa þér að ná lengra í tónlistarsköpun þinni. Mikið af vörunum eru ávalt til á lager en sumar kjósum við að sérpanta fyrir viðskiptavini okkar og þá tekur það yfirleitt 2-3 vikur að fá vörurnar.
Hljóðfæri
Hljóðfæri