Roland Aerophone GO
Roland Aerophone GO er létt og nett rafmagns blásturshljóðfæri sem hentar þeim sem hafa reynslu af saxófón eða öðrum blásturshljóðfærum.
Hljóðfærið er með takka sem eru svipaðir og á saxófón og bregst við andardrætti og biti. Þannig er hægt að stjórna hljóðinu á eðlilegan hátt.
Aerophone GO býður upp á 11 mismunandi hljóð, meðal annars saxófón, flautu, klarinett og fiðlu. Með Bluetooth er hægt að tengja hljóðfærið við snjallsíma og nota það með Roland forritum.
Græjan er með innbyggðan hátalara sem leyfir þér að spila án þess að tengja hljóðfærið við annan búnað. Einnig er hægt að nota heyrnartól, sem hentar vel fyrir æfingar heima.
Aerophone GO er aðeins um 695 g með rafhlöðum og því fislétt. Það gengur fyrir rafhlöðum eða USB snúru og er því hentugt bæði heima og á ferðinni.
Helstu eiginleikar:
- 11 innbyggð hljóð
- Takkar með saxafón uppsetningu
- Stýring með andardrætti og biti
- Bluetooth-tenging
- Innbyggður hátalari
- Hægt að nota heyrnartól
- Létt
- USB-tenging
- Hentar vel fyrir byrjendur og lengra komna
