JBL SRX915M 15″ hátalari með innbyggðum magnara
JBL SRX915M er öflugur 15″ hátalari sem hentar vel fyrir tónleika, viðburði, veislur og sviðsnotkun. Hann gefur frá sér skýrt og kraftmikið hljóð en einnig er hægt að nota hann sem sviðsmonitor.
Hátalarinn er með innbyggðum magnara og DSP-stýringu og auðvelt er að stilla hljóðið eftir þörfum. Hann skilar miklum styrk og góðum bassa án þess að hljóðið verði óskýrt.
Helstu eiginleikar:
- 15″ hátalari
- Innbyggður 600 W magnari
- Allt að 134 dB hljóðstyrkur
- Tíðnisvið 50 Hz–20 kHz
- 90° × 60° hljóðdreifing
- Innbyggð DSP-stýring
- Powercon True-1 tengi fyrir rafmagn bæði inn og út
- Hægt að nota sem sviðsmonitor
- Sterk og endingargóð hönnun úr birkiskrossvið.
- Hentar bæði fyrir ferðakerfi og fasta uppsetningu
JBL SRX915M er góður kostur fyrir þá sem vilja öflugan, traustan og fjölhæfan hátalara fyrir faglega notkun.
