Fender California Standard Redondo CE er vandaður kassagítar með klassískt Fender útlit. Gítarinn er hannaður fyrir gítarleikara sem vilja gott hljóðfæri á góðu verði.
Gítarinn er með Dreadnought lögun sem skilar góðum hljómi. Toppurinn er úr gegnheilu greni sem hjálpar til við að gefa náttúrulegt og opið hljóð.
Hálsinn er þægilegur og hentar bæði byrjendum og reyndari gítarleikurum. Cutaway gerir auðveldara að ná efri böndum gítarsins, sem hentar vel fyrir sólóspil. Innbyggt Fender-pickup gerir einfalt að tengja gítarinn við magnara eða hljóðkerfi fyrir tónleika, upptökur og æfingar.
California Standard Redondo CE er einnig með falleg smáatriði sem gefa honum nútímalegt og stílhreint útlit. Hausinn er með klassíska Fender-hönnun.
Þessi gítar er frábær kostur fyrir gítarleikara sem vill áreiðanlegt hljóðfæri með góðu hljóði, þægilegri spilun og klassískum Fender karakter.
Helstu eiginleikar:
• Gegnheill grenitoppur
• Kraftmikill og fullur hljómur
• Cutaway fyrir auðveldari spilun
• Innbyggt Fender pickup , stillitæki og formagnari
• Hentar bæði fyrir svið og heimilisnotkun
• Þægilegur háls og góð spilatilfinning
• Klassískt Fender headstock útlit
• Léttur og þægilegur í notkun
• Hentar byrjendum og lengra komnum
• Stílhrein California hönnun
