Roland GP-3 PE er rafmagnsflygill með stílhreint útlit og nýjust tækni Roland. Flygillinn er hannaður fyrir heimili þar sem fólk vill njóta raunverulegrar píanóupplifunar án þess að þurfa mikið pláss. .
GP-3 notar Piano Reality Standard frá Roland sem skilar náttúrulegum og hlýjum píanóhljómi. Píanóið er með 88 nótum og PHA-4 Standard lyklum sem gefur raunverulega tilfinningu við spilun. Lyklarnir eru næmir og bregðast vel við bæði mjúkum og kraftmiklum leik, sem gerir flygilinn hentugan fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.
Innbyggðir hátalarar fylla herbergið af skýru og kraftmiklu hljóði. Einnig er hægt að tengja heyrnartól og æfa hvenær sem er án þess að trufla aðra. Með Bluetooth-tengingu er auðvelt að spila með uppáhaldslögum úr síma eða spjaldtölvu og nota tónlistaröpp til að æfa og kenna.
Þessi rafmagnsflygill er frábær kostur fyrir þá sem vilja fá fallegt og vandað píanó með nútímalegum eiginleikum, góðu hljóði og þægilegri notkun í daglegu lífi.
Helstu eiginleikar:
• 88 lykla PHA-4 Standard hamarsmekkur
• Piano Reality Standard hljóðkerfi
• Glansandi svört Polished Ebony áferð
• Bluetooth Audio og MIDI tenging
• Innbyggðir hátalarar með skýru hljóði
• Tengi fyrir heyrnatól
• Innbyggður upptökubúnaður og taktmælir
• USB tengi fyrir tölvu og gagnageymslu
• Falleg og nett flygilshönnun
