Roland GP-6 er rafmagnsflygill með klassískt útlit og nútímatækni í vönduðu hljóðfæri. Flygillinn er hannaður fyrir þá sem vilja fallegt og kraftmikið píanó sem passar vel inn á heimilið og veitir raunverulega upplifun.
GP-6 er með vönduðum lyklum sem gefa mjúka og náttúrulega tilfinningu. Spilatilfinningin líkist hefðbundnum flygli og auðvelt er að stjórna styrk og mýkt í leiknum. Þetta gerir flygilinn að góðum kost fyrir alla sem langar til að spila.
Hljóðkerfið skilar ríkulegu og djúpu píanóhljóði með mikilli fyllingu. Innbyggðir hátalarar dreifa hljóðinu velog skapa náttúrulega stemningu hvort sem verið er að æfa, spila fyrir gesti eða njóta tónlistar heima. Hægt er að tengja heyrnartól og æfa án þess að trufla aðra.
Bluetooth-tenging gerir notendum kleift að tengja síma eða spjaldtölvu til að spila tónlist eða nota tónlistaröpp við æfingar. Einnig er hægt að taka upp eigin spilun og hlusta aftur til að fylgjast með framförum.
Hönnun Roland GP-6 er bæði glæsileg og tímalaus. Flygillinn setur fallegan svip á hvaða rými sem er og sameinar klassískt útlit og nútímalega tækni á elegant hátt. Vönduð smíði og hágæða efni tryggja að hljóðfærið endist vel og haldi fallegu útliti sínu til lengri tíma.
Roland GP-6 er frábær kostur fyrir alla sem vilja rafmagnsflygill með fallegu útliti, raunverulegri spilatilfinningu og vönduðu píanóhljóði fyrir heimilið.
