JBL PRX918XLF – Öflugur 18″ bassahátalari
JBL PRX918XLF er öflugur, bassahátalari með innbyggðum magnara, sem skilar djúpum, þéttum og skýrum bassa. Hann hentar vel fyrir tónleika, plötusnúða, viðburði og hljóðkerfi þar sem bassinn skiptir máli.
Hátalarinn er með 18 tomma keilu og innbyggðan magnara sem skilar allt að 2.000 W í kraft. Hann gefur frá sér kraftmikinn bassa sem fyllir rýmið og nýtist vel með öðrum hátölurum í JBL PRX900 línunni.
Með innbyggðri DSP vinnslu er hægt að stilla hljóðið eftir aðstæðum. Hægt er að stjórna stillingum bæði á skjá hátalarans og í JBL Pro Connect appinu. Sterk og endingargóð smíði gerir það auðvelt að flyttja hann á milli staða og nota við krefjandi aðstæður.
Helstu eiginleikar:
- 18 tommu bassahátalari með innbyggðum magnara
- Allt að 2.000 W í peak og 1.000 W RMS afl
- Hámarks hljóðstyrkur allt að 134 dB
- Djúpur, kraftmikill og skýr bassi
- Innbyggðar hljóðstillingar og litaskjár
- Hægt að stjórna stillingum með JBL Pro Connect appinu
- Tveir XLR-tengimöguleikar fyrir innmerki og tveir XLR-útgangar
- Sterk og endingargóð hönnun
- Þyngd um 40,7 kg
JBL PRX918XLF er frábær kostur fyrir þá sem vilja öflugan og vandaðan bassahátalara sem skilar góðum bassa bæði í litlum og stórum hljóðkerfum.
