Vintage VVB4SB Antique Sunburst
Vintage VVB4SB er fallegur og klassískur viola bassi með retro útliti. Hann er í Antique Sunburst lit sem gefur hlýjan og gamaldags stíl sem minnir á 6. áratuginn.
Bassinn er hálfholur (semi-hollow), sem gefur mjúkan, djúpan og hlýjan tón. Hann hentar vel í rokk, popp og léttari tónlist þar sem óskað er eftir vintage hljómi.
Hann er léttur og þægilegur í spilun. Stuttur skali gerir strengina mýkri og auðveldari að spila á. Tveir single coil pickupar gefa skýran og hlýjan tón, og einfaldar stillingar gera þér kleift að móta tóninn auðveldlega.
Vintage VVB4SB er góður kostur fyrir þá sem vilja flottan bassa með klassískum hljómi.
