Roland TD-07DMK raftrommusett
TD-07DMK er frábært sett fyrir byrjendur sem og lengra komna. Það er auðvelt að setja það upp og það hentar vel til æfinga og til að taka upp eigin trommuleik. Eins er það mjög gott sem midi stýring fyrir trommu plug-ins.
Settið samanstendur af fjórum „mesh-heads“ plöttum, sneril platta og þremur tom tom plöttum sem bjóða upp á raunverulega spila tilfinningu og hljóðláta spilun. Þú getur strekkt eða slakað á mesh skinnunum til að fá raunverulega spila tilfinningu eins og um alvöru trommur væri að ræða. Bassatrommu plattinn er úr gúmmí.
TD-07 Módúlan býður upp á mjög fjölbreytt safn trommu-sánda. Hún er með Bluetooth-tengingu til að geta spilað með tónlist úr síma eða tölvu, ásamt USB-tengingu fyrir upptöku og hljóðvinnslu.
Helstu eiginleikar:
- „Mesh-heads“ á öllum trommum fyrir náttúrulega spilatilfinningu og lágt hljóðstig
- TD-07 hljóð módúla með yfir 25 trommusettum og 140 sándum.
- Bluetooth fyrir þráðlaust tónlistar samspil
- USB tenging fyrir upptökur og hljóðvinnslu.
- Stillanlegur og stöðugur trommu rakkur heldur settinu uppi
Roland TD-07DMK er skemmtilegt og hljóðlátt trommusett sem gefur þér raunverulega spila tilfinningu og mikla stjórn yfir sándum.
