Roland RDH-102A, tvöfaldur bassatrommupedall með hljóðleiðni dempun..
Roland RDH-102A er tvöfaldur bassatrommupedall sem hentar bæði raf- og venjulegum trommusettum. Hann er hannaður til að draga úr leiðni hljóðs niður í gólf, sem gerir hann frábæran kost fyrir spilamennsku heima fyrir, og þá sérstaklega í fjölbýli.
Helstu eiginleikar:
- Tvöfaldur pedall með mjúku og þægilegu spila “feel-i”
- Innbyggður hljóðleiðni dempari sem dregur úr hávaða á milli hæða.
- Sterkbyggður.
- Stillanlegir gormar og keðja.
- Hentar bæði raftrommum og venjulegum trommum.
RDH-102A gefur þér góða stjórn í spilamennskunni, á sama tíma og þú truflar minna þá sem eru í kringum þig.
