Roland VAD-716 Raftrommusett
Hágæða raftrommusett sem sameinar afar raunverulega spila upplifun með plöttum sem hafa mjög raunverulegt touch við fullkomnustu tækni frá Roland. Þetta sett er hannað fyrir trommuleikara sem gera hæstu kröfur um næmni og sánd.
Eiginleikar TD-716
- V71 modúla: VAD-716 er búið Roland V71 trommu-modúlunni sem býður upp á mjög fjölbreytt úrval af sándum, þróuðum í samstarfi við DW (Drum Workshop). Það tryggir afar vönduð og raunveruleg trommusánd.
- PD-14DSX Digital Snare: Nýjasti PD-14DSX sneriltrommu plattinn er afar nákvæmur og nemur smæstu núansa, með snare-throw-off og víra stillingu eins og alvöru sneriltromma.
- Fullt sett af hágæða plöttum: Með PD-10X 10” og PD-12X 12” tom tom plöttum, tveimur 14” (PDA140F) floor tom plöttum, og KD-22 bassatrommu platta. Þeir líkja afar vel eftir raunverulegum trommum, bæði í útliti og spila tilfinningu.
- VH-14D Digital Hi-Hat og CY-18DR Digital Ride: Þessir plattar eru afar nákvæmir og bjóða upp á mjög raunverulega spila upplifun.
- V-Cymbals: Tveir 16” V-Cymbals eru með í settinu.
- DW Soundworks Samhæfni: VAD-716 getur tengst DW Soundworks hugbúnaði, sem veitir aðgang að Drum Workshop sánd safninu frábæra.
- Bluetooth Tengimöguleikar: Með innbyggðu Bluetooth geturðu spilað með tónlist frá snjallsímanum þínum, tekið upp MIDI án snúru og nýtt Roland Cloud Connect appið fyrir auðvelda tengingu og uppfærslur.
- V-Drums Acoustic Design: Líkir eftir alvöru trommusetti með plöttum sem líta út eins og alvöru trommur með skeljum í fullri stærð, sem gerir spila upplifunina enn raunverulegri.
Roland VAD-716 raftrommusettið er fullkomið fyrir trommuleikara sem vilja rafsett með spila næmni og sándum í hæsta gæðaflokki. Þetta sett sameinar nýjustu tækni Roland við frábæra hönnun, sem tryggir frábært hljóðfæri.
