Roland TD-02KV raftrommusett
Frábært rafsett fyrir byrjendur á góðu verði. Trommaðu heima án þess að hafa áhyggjur af því að ónáða aðra með hávaða og látum. Settið er með mjög góðum trommu-sándum.
- LÝSING
Þegar lítið er um pláss er Roland TD-02K fullkomið fyrir trommarann sem er að byrja. Settið kemur á stærri standi en TD-02K settið og samanstendur af þremur gúmmí tom tom plöttum, einum “Mesh-Head” platta fyrir sneriltrommu, þremur cymbal plöttum og pedölum fyrir bassatrommu og hi-hat. Tengdu settið við heyrnatól og spilaðu eins og þú vilt án þess að ónáða aðra.
Settið er með 16 mismunandi trommusett innbyggð, þjálfunar stillingu og möguleika á að spila með tónlist úr síma o.fl.
