Stílhreint og nett, Roland RP-102 rafmagnspíanóið er frábært fyrir heimilið.
Píanóið notfærir sér Roland Supernatural modeling tækni sem gefur notendum náttúrulegan og „dýnamískan“ hljóm. Borðið er með 88 vigtaðar nótur með Roland PHA-4 lyklatækni sem gefur raunverulegan áslátt.
Borðið býður upp á fjöldamarga tóna, allt frá stórum flýglum í heila simfóníu. Einnig er hægt að velja stök hljóðfæri m.a fiðlur, selló og flautu. Best er að notast við Roland Piano Partner 2 smáforritið til þess að velja hljóðin.
Hægt er að tengja borðið í heyrnatól eða njóta hljómsins í innbyggðu hátölurunum.
Roland RP-102 fæst aðeins í svörtum lit.
Frekari upplýsingar er hægt að finna á Roland vefsíðunni.