Roland Juno DS61 er með 61 hálfvigtaðar nótur, fullt af innbyggðum hljóðum og möguleika á að sækja fleiri hljóð úr Axial hljóðbanka Roland.
Borðið er fullkomið fyrir atvinnumenn og áhugafólk og hægt er að nota borðið í lifandi flutningi eða sem aðalborð í stúdíóinu.. Borðið er með hundruðir innbyggðra hljóða og fullt af effektum.
„Ferðastu um eins gítarleikari“ er slagorð borðsins sem er einungis 5,3kg. Hægt er að nota það með spennubreyti eða rafhlöðum (þær fylgja ekki með) sem veitir tónlistarmanneskju á ferðinni mikinn sveigjanleika.
Undir borðið er best að nota Roland KS10X stand eða KS12 stand sem auðvelt að brjóta saman og taka með sér. .